Nautapottréttur

Mynd: Gott í matinn
Mynd: Gott í matinn

Þessi uppskrift er fengin að láni frá gottimatinn.is. Upplagt er að nota í réttinn nautagúllas og grænmeti beint frá býli. Það gerist ekki ferskara!

Uppskrift:

600 g nautagúllas

150-200 g tómatúrra

1 laukur

1 rauð paprika

5  gulrætur

200 g rjómaostur

200 g matreiðslurjómi

Salt, pipar, karrý, paprikuduft og kraftur

  • Saxið niður lauk, skerið gulrætur í sneiðar og papriku í strimla.
  • Steikið laukinn á meðalhita upp úr olíu og karrý þar til hann mýkist. Bætið gulrótum og papriku saman við, ögn meiri olíu og salti og pipar og færið yfir á disk
  • Léttsteikið gúllasið í olíu á sömu pönnu, nóg er að rétt brúna það á hliðunum því það mun fulleldast þegar pottrétturinn mallar.
  • Bætið tómatpúrru á kjötið á pönnunni, rjómaosti og matreiðslurjóma og hrærið vel.
  • Hellið grænmetinu saman við og kryddið réttinn til með salti, pipar, paprikudufti og krafti.
  • Gott er að leyfa réttinum að malla í 30-60 mínútur og bera fram með hrísgrjónum og salati.

Höfundur uppskriftar á Gott í matinn er Berglind Hreiðarsdóttir.


Svæði

Skagafjörður - Matur úr héraði - Local Food

info@matarkistanskagafjordur.is