Mintukryddlegin lambagrillsteik

Nú þegar hausta tekur fer sláturtíð að hefjast og brátt fer fólk að huga að því að bæta í frystikistuna fyrir veturinn. Það er þó enn tækifæri til að nýta haustveðrið og nota útigrill við matargerð. Skagfirskt lambakjöt er veislumatur sem hægt er að elda á marga vegu. Við mælum með því að versla mintu frá Garðyrkjustöðinni Laugarmýri og prufa þessa uppskrift af mintuleginni lambagrillsteik sem fengin er frá www.lambakjot.is.

Mintukryddlegin lambagrillsteik

Hráefni

1 vænt Skagfirskt lambalæri 
3 sítrónur 
100 ml ólífuolía 
100 ml þurrt hvítvín 
1 heill hvítlaukur, afhýddur og saxaður 
hnefafylli af mintulaufi 
1 laukur, saxaður smátt 
nýmalaður pipar 
salt

Leiðbeiningar

Lærið úrbeinað, fituhreinsað að nokkru, snyrt og skorið í 4-5 álíka stór stykki sem sett eru í stóra skál. Safinn kreistur úr sítrónunum og settur í matvinnsluvél eða blandara ásamt ólífuolíu, hvítvíni, hvítlauk og mintulaufi. Þeytt vel saman. Laukurinn hrærður saman við með sleif, kryddað með pipar og svolitlu salti, hellt yfir lambakjötið og látið liggja í 1-2 klst við stofuhita. Grillið hitað. Lambakjötið tekið úr leginum og bundið um bitana á nokkrum stöðum með seglgarni sem látið hefur verið liggja í bleyti í köldu vatni, þannig að bitarnir haldi lögun og séu sem jafnastir að þykkt. Kjötið sett á grillið og grillað við meðalhita í um hálftíma. Snúið nokkrum sinnum á meðan og penslað með kryddleginum. Kjötið tekið af grillinu og látið standa í 5-10 mínútur áður en það er skorið í þunnar sneiðar og borið fram.

Verði ykkur að góðu!


Svæði

Skagafjörður - Matur úr héraði - Local Food