Upplýsingar

Skagafjörður skemmtilegur í fríinu!

Þátttakendur

Það eru matvælaframleiðendur, veitingahús, verslanir, ferðaþjónutuaðilar, Hólaskóli Háskólinn á Hólum og Sveitarfélagið Skagafjörður sem vinna saman að verkefninu Matarkistan Skagafjörður.

 

 

Markmið

Helstu Markmið með Matarkistu Skagafjarðar eru:

     

  • Að gera skagfirsk matvæli sýnileg
  • Að byggja upp sterka gæðaímynd um mat í Skagafirði
  • Að Skagafjörður verði skilgreindur sem matvælahérað
  • Að stuðla að nýjungum í framreiðslu á skagfirskum matvælum
  • Að safna og vernada vinnuaðferðir og hefðir í matargerð
  • Að efla samstarf innan og utan héraðs

 

Matarkistan

Fáðu þér bita úr Matarkistu Skagafjarðar!

Í Skagafirði fer fram frumkvöðlastarf á landsvísu við uppbyggingu matarferðaþjónustu í héraði.

Með þróunarverkefninu Matarkistan Skagafjörður er leitað leiða til að þróa matarferðaþjónustu (Culinary Tourism) í Skagafirði sem og á landsvísu. Rík áhersla er á að efla gæðaímynd skagfirskra matvæla.

 

Matarmenning

Matarmenning og hefðir er eitt af því sem mikilvægt er að varðveita í nútímasamfélagi. Sérstaða hverrar þjóðar í matargerð er það sem hver þjóð á að varðveita og vera stolt af.

Þegar horft er til fortíðar er ekki hægt að finna margar heimildir varðandi mat og matarhefðir, því er mikilvægt að varðveita matarhefðir og matargerð, bæði gamlar og nýjar.

 Matarkistan

 

Uppskrift vikunnar

Grillaðar kjúklingabringur kryddaðar í sítrónu og timian

1 stór Kjúklingur í bitum eða bringur
Sósa:
4 msk. púðursykur
1 1/2 msk paprikuduft
Salt
1 1/2 sinnep
1/4 tsk chilliduft
3 msk. Worcestershiresósa
1/2 dl hvítvíns- eða borðedik
2 dl tómatsafi
1 1/2 dl tómatsósa
1 dl vatn

Raðið kjúklingabitunum í eldfast mót. Setjið allt sem fer í sósuna í pott og sjóðið við vægan hita í 15 mínútur.

Hellið sósunni yfir kjúklinginn og bakið í 200°C heitum ofni í 50-60 mínútur. Berið fram með brauði og hrísgrjónum með maísbaunum.