Þegar að við erum að tala um matartengda ferðaþjónustu þá er átt við þá tegund ferðaþjónustu sem byggir á vöruþróun á sviði matvæla með samstarfi ferðaþjónustu-og matvælafyrirtækja.
Til þess að hægt sé að þróa matarferðaþjónustu er nauðsynlegt að það fari fram matvælaframleiðsla á svæðinu auk þess að það fari fram ferða-og veitingaþjónusta.
Það má spyrja sig hvaða fyrirtæki flokkast sem matvælafyrirtæki?
Í íslenskum lögum eru öll fyrirtæki sem dreifa matvælum skilgreind sem matvælafyrirtæki. Með dreifingu matvæla er meðal annars átt við framreiðslu matvæla.
Öll ferðaþjónustufyrirtæki sem framreiða veitingar í stórum eða smáum stíl eru því skilgreind sem matvælafyrirtæki.
Samstarf er lykilinn að matarferðaþjónustu, en til að geta þróað slíka þjónustu er mikilvægt að allir vinni saman og um leið styrki efnahag svæðisins, en stór hluti eyðslu ferðamanna fer í mat og áhugi ferðamanna á mat úr héraði fer vaxandi.
Verkefni eins og Matarkista Skagafjarðar getur vakið áhuga ferðafólks á að eyða fríinu sínu á tilteknu svæði.