Upplýsingar

Skagafjörður skemmtilegur í fríinu!

Hverjir geta tekið þátt?

 

Verkefnið Matarkistan Skagafjörður er fyrir öll matvælafyrirtæki í Skagafirði, allt frá einstökum bændum og upp í stór matvælafyrirtæki.
Sem sagt allir sem stunda matvælavinnslu af einhverju tagi í héraðinu geta orðið þátttakendur í þessu verkefni. Einu skilyrðin eru þau að viðkomandi einstaklingur eða fyrirtæki fari eftir vissum stöðlum þ.e.a.s. það er ekki verið að leita eftir skyndibitamat.
Þátttakendur geta verið til dæmis bændur, ferðaþjónustuaðilar, bakarí, veitingahús, verslanir, mjólkursamlag, kjötvinnslur, fiskvinnslur, skólar og sveitafélög. Mörg önnur fyrirtæki geta verið þátttakendur sem vilja taka þátt í þessu á einhvern hátt, t.d. matvælaflytjendur, áhugamannafélög og fleiri sem telja hagsmunum sínum borgið með þátttöku

 

Uppskrift vikunnar

Grillaðar kjúklingabringur kryddaðar í sítrónu og timian

1 stór Kjúklingur í bitum eða bringur
Sósa:
4 msk. púðursykur
1 1/2 msk paprikuduft
Salt
1 1/2 sinnep
1/4 tsk chilliduft
3 msk. Worcestershiresósa
1/2 dl hvítvíns- eða borðedik
2 dl tómatsafi
1 1/2 dl tómatsósa
1 dl vatn

Raðið kjúklingabitunum í eldfast mót. Setjið allt sem fer í sósuna í pott og sjóðið við vægan hita í 15 mínútur.

Hellið sósunni yfir kjúklinginn og bakið í 200°C heitum ofni í 50-60 mínútur. Berið fram með brauði og hrísgrjónum með maísbaunum.