Upplýsingar

Skagafjörður skemmtilegur í fríinu!

Matarkistan Skagafjörður

 

Matur, matarmenning og hefðir er eitt að því sem mikilvægt er að varðveita í nútímasamfélagi. Sérstaða hverrar þjóðar í matargerð er það sem hver þjóð á að varðveita og vera stolt af. Þegar að horft er til fortíðar eru ekki margar heimildir til varðandi mat og matarhefðir í gömlum ritum. Því má segja að nú sé mikilvægt að vinna vel og halda utan um matarhefðir og matargerð bæði gamlar og nýjar.
Matarmenning í tengslum við ferðaþjónustu hefur aukist gríðalega á síðustu árum. Það virðist sem ferðamaðurinn hafi breyst og viðhorfið gagnvart því að bragða á því ókunnuga. Sérstæður matur er vinsæll og má segja að maturinn í hinu almenna ferðalagi er farinn að skipta meira máli. Það virðist sem ekki sé nóg að heimsækja sérstaka staði heldur þarf það sem fylgir að hafa sína sérstöðu þar á meðal maturinn.

 

Uppskrift vikunnar

Grillaðar kjúklingabringur kryddaðar í sítrónu og timian

1 stór Kjúklingur í bitum eða bringur
Sósa:
4 msk. púðursykur
1 1/2 msk paprikuduft
Salt
1 1/2 sinnep
1/4 tsk chilliduft
3 msk. Worcestershiresósa
1/2 dl hvítvíns- eða borðedik
2 dl tómatsafi
1 1/2 dl tómatsósa
1 dl vatn

Raðið kjúklingabitunum í eldfast mót. Setjið allt sem fer í sósuna í pott og sjóðið við vægan hita í 15 mínútur.

Hellið sósunni yfir kjúklinginn og bakið í 200°C heitum ofni í 50-60 mínútur. Berið fram með brauði og hrísgrjónum með maísbaunum.